HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 7. mars 2000 kl. 18:02

Upplýstir þjóðvegir á Suðurnesjum

Lagt hefur verið til að Hitaveita Suðurnesja og Vegagerð ríkisins kanni grundvöll fyrir samstarfi um að setja um gatnalýsingu við þjóðvegi á Suðurnesjum þar sem umferð er hvað mest. Má þar nefna leiðirnar frá Reykjanesbraut til Grindavíkur og þjóðvegina til Garðs og Sandgerðis. Hugmyndin er að H.S. bjóðist til að útvega fjármagn til framkvæmdanna á hagstæðum kjörum og jafnvel sjá um verkið, gegn því að Vegagerðin hlutist til um að framkvæmdin verði sett inn á vegaáætlun og áætlun um endurgreiðslu ríkisins liggi fyrir. Þetta kom fram á stjórnarfundi Hitaveitu Suðurnesja fyrir skömmu og forstjóra H.S. var falið að undirbúa málið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn