Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

  • Upplýsingamiðstöð ferðamála líklega í Gömlu búð
    Brátt fer vinnu við ytra byrði Gömlu búðar að ljúka. VF-mynd/hilmarbragi
  • Upplýsingamiðstöð ferðamála líklega í Gömlu búð
    Gamla búð, séð úr lofti. VF-mynd/hilmarbragi
Mánudagur 16. janúar 2017 kl. 10:29

Upplýsingamiðstöð ferðamála líklega í Gömlu búð

Gert er ráð fyrir að Menningarskrifstofa Reykjanesbæjar og Upplýsingamiðstöð ferðamála verði fluttar í Gömlu búð næsta sumar, samkvæmt fundargerð Menningarráðs Reykjanesbæjar frá 12. janúar síðastliðnum. Á fundinum fór sviðsstjóri yfir stöðu framkvæmda við Gömlu búð og Fischershús og upplýsti að vinnu við ytra byrði beggja húsanna færi nú brátt að ljúka og þá yrði gert hlé á framkvæmdum í Fischershúsi í bili en farið í endurgerð innanhúss í Gömlu búð. Ráðið ræddi ýmsar hugmyndir um nýtingu Fischershúss þegar framkvæmdum þar yrði lokið.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024