Upplýsingafundur Almannavarna með íbúum Voga í kvöld
Í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi verður haldinn upplýsingafundur Almannavarnarnefndar Suðurnesja í samstarfi við Sveitarfélagið Voga í kvöld, fimmtudaginn 26. september. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal, Tjarnargötu 2, Vogum og hefst klukkan 20:00. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum og gefa íbúum, atvinnurekendum og öðrum hagaðilum tækifæri til að bera fram spurningar.
Dagskrá:
Auk bæjarstjóra sem mun flytja ávarp í upphafi fundar munu fulltrúar etirfarandi stofnana flytja erindi á fundinum og sitja fyrir svörum:
- Veðurstofa Íslands
- Umhverfisstofnun
- Vegagerðin
- HS veitur
- Náttúruhamfaratrygging Íslands
Einnig munu fulltrúar viðbraðgsaðila vera á staðnum til að svara spurningum, þ.e. fulltrúar lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita og Almannavarnarsviðs Ríkislögreglustjóra.
Fundarstjóri verður Víðir Reynisson sviðstjóri Almannavarnarsviðs Ríkislögreglustjóra.
Streymi verður í spilara hér að neðan.