HSS
HSS

Fréttir

Upphafið að glæsilegu íþróttasvæði
Föstudagur 13. janúar 2006 kl. 17:32

Upphafið að glæsilegu íþróttasvæði

Fyrsta skóflustungan að glæsilegu íþrótta og útivistarsvæði ofan Reykjaneshallar, á Nikkelsvæðinu, var tekin í dag. Ellert B. Scram, forseti ÍSÍ, varð þess heiðurs aðnjótandi að hefja framkvæmdir með því að sparka bolta til marks um að grafa mætti hefja störf. Að því loknu tók ahnn fyrstu skóflustunguna ásamt þeim Einari Haraldssyni, formanni Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, Kristjáni Pálssyni, formanni UMFN, og Jóhanni B. Magnússonar, formanns ÍRB.

Um er að ræða gríðarlega mikla framkvæmd á svæði sem er 26 hektarar að stærð, elítið stærra en íþróttasvæðið í Laugardal í Reykjavík. Á svæðinu verður æfinga og keppnisaðstaða knattspyrnudeilda Keflavíkur og UMFN, en fyrsti áfanginn, æfingasvæði UMFN, verður tekið í gagnið strax í sumar.

Þá verður frjálsíþróttasvæði, körfuknattleiksvellir, og ýmiskonar félagsaðstaða sem tengist íþróttum auk þess sem langir göngu- og hjólreiðastígar liggja um allt.

Stærsta byltingin verður þó án efa stórglæsilegur knattspyrnuleikvangur sem mun verða samkvæmt stöðlum fyrir Evrópukeppnir. Völlurinn verður niðurgrafinn og stúkur sitthvorumegin.

VF-myndir/Þorgils

Bílakjarninn
Bílakjarninn