Uppfært hættumatskort
Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumatskort fyrir gossvæðið sem skilgreinir hættusvæði eins og það lítur út í dag. Appelísnuguli liturinn sýnir skilgreint hættusvæði.
Í kringum eldgos og gosstöðvarnar geta leynst ýmsar hættur. Gróðureldar geta kviknað sem draga verulega úr loftgæðum og nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara. Einnig getur glóandi hraun fallið úr hraunjaðrinum og nýjar hrauntungur geta skyndlega brotist fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða. Gasmengun er viðvarandi og hættan eykst þegar vind lægir. Gas getur safnast í dældir og verið banvænt. Varað er við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Veðurstofunnar.