Uppfærð rýmingarkort fyrir Grindavík
Komi til rýmingar í Grindavík vegna hættuástands verður viðvörun gefin með SMS og hljóðmerkjum frá almannarvarnarflautum. Íbúar eru þá beðnir um að fylgja rýmingaráætlun.
- Farið strax út í bifreið
- Akið varlega af svæðinu
- Fylgið næstu flóttaleið út af svæðinu
- Skráið ykkur við næsta eftirlitspóst
Öryggisreglur
- Kynnið ykkur öryggiskort af svæðinu. Þekkja skal flóttaleiðir og afmörkuð svæði.
- Ávalt skal hafa farsíma meðferðis, stilltan á hæstu hljóðstillingu og tryggt að tilkynningar neyðarskilaboða sé virk.
- Fylgjast skal með loftgæðum með gasmælum eða á loftgaedi.is
- Aka skal einungis á merktu vegum/svæðum. Ekki fara í aðstæður þar sem möguleiki er að festa farartæki.
- Akið varlega um svæðið og virðið hámarkshraða.
- Leggja skal bifreið í flóttaátt og gæta þess að teppi ekki götur.
- Öryggisvitund, þekkja til hvaða hættur geta komið upp á svæðinu.
- Ekki skal ferðast um á lóðum, eða svæðum utan skilgreindra öruggra svæða; jarðvegur er ekki öruggur. Ferðist um á bifreið á svæðinu.
- Fylgja skal rýmingaráætlun ef boð um rýmingu berst.
- Tilkynna skal til 1-1-2 um sprungu sem ekki eru afmarkaðar eða aðrar hættur s.s. ófullnægjandi loftgæði.