Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur opnað fyrir umsóknir
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2023. Sjóðurinn er hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja og er í umsjón Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Markmið hans er að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs á Suðurnesjum, menningarstarfsemi og atvinnuskapandi verkefni á svæðinu.
Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir
Verkefnastyrkir á menningarsviði
Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2022.
Hægt er að skoða úthlutunarreglur og leiðbeiningar við gerð umsókna á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sss.is. Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðnum svo mikilvægt er að vanda vel til verka. Frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri Logi Gunnarsson á netfanginu [email protected] og í síma 420 3294.