Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja – nýr styrktarsjóður
Frá úthlutun úr Vaxtarsamningi Suðurnesja. Nýr samningur hefur tekið við af honum.
Miðvikudagur 8. apríl 2015 kl. 14:58

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja – nýr styrktarsjóður

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér samning um Sóknaráætlun Suðurnesja sem gildir frá árinu 2015 til 2019.

Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Markmiðið er jafnframt að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna.

Með samningi þessum verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur veitt styrki til menningarmála í gegnum Menningarsamning Suðurnesja og til þróunar- og nýsköpunarverkefna í gegnum Vaxtarsamning Suðurnesja.

Báðir þessir sjóðir eru nú sameinaðir í einn styrktarsjóð sem nú heitir Uppbyggingarsjóður Suðurnesja.

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og hlutverk hans er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans.  Sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki meira en 50% af heildarkostnaði verkefna.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja mun auglýsa eftir styrkhæfum verkefnum þann 16. apríl nk. og verður umsóknarfrestur til 30. apríl 2015.

Umsóknareyðublöð ásamt öðrum gögnum sem umsækjendur þurfa á að halda við ritum umsóknar verða aðgengileg á vef sambandsins www.sss.is næstu daga.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024