Uppbygging skyggir á loftvarnakerfið
Til skoðunar er að hækka kúluna á Miðnesheiði sem hýsir ratsjár- og fjarskiptastöð NATO. Að sögn Jóns B. Guðnasonar, framkvæmdastjóra Landhelgisgæslu Íslands í Keflavík, er ástæðan sú að nýjar og háar byggingar sem rísa munu á Keflavíkurflugvelli munu skyggja á geisla frá ratsjárstöðinni. „Í ljósi allra þeirra breytinga sem eru að verða á svæðinu umhverfis flugstöðina, samaber nýtt „master plan“ sem Isavia hefur kynnt, þá er þetta meðal þess sem til skoðunar er. Hærri byggingar á svæðinu munu skyggja á sjónsvið stöðvarinnar, þar með talið á ratsjárgeislann,“ segir hann.
Kúlan stendur á stálgrind við stöðvarbygginguna og hafa frumathuganir verið gerðar á því með hvaða hætti farsælast er að hækka kúluna. Þær eru nú til nánari skoðunar en ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir enn sem komið er.
Ratsjár- og fjarskiptastöðin á Miðnesheiði er ein af fjórum stöðvum NATO hér á landi og eru stöðvarnar mikilvægar varðandi öryggis- og varnarmál Íslands og Atlantshafsbandalagsins. Þessu til viðbótar gegna stöðvarnar mikilvægu hlutverki í flugleiðsögu og flugöryggi hér á landi. Að sögn Jóns er ljóst að framtíðaráætlanir varðandi uppbyggingu á svæðinu við flugstöðina munu hafa áhrif á rekstur stöðvarinnar. Stöðvarnar eru hluti af loftrýmiseftirlitskerfi Atlantshafsbandalagsins hér á landi og tengjast þær stjórnstöð NATO á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Kerfið er rekið af Landhelgisgæslu Íslands fyrir hönd íslenska ríkisins.