Uppboð hjá lögreglu
Saknar þú einhvers?
Uppboð á óskilamunum í vörslu lögreglunnar verður haldið föstudaginn 31. Maí n.k. klukkan 15:00 við lögreglustöðina í Keflavík, Hringbraut 130. Aðallega eru um að ræða reiðhjól en þó verða einhverjir aðrir munir boðnir upp. Skorað er á þá sem hafa glatað reiðhjólum og öðrum munum að athuga hjá okkur hvort þar sé hlutina að finna.