Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Unnið verði ítarlegt varðveislumat vegna Sundhallar Keflavíkur
Mánudagur 2. júlí 2018 kl. 13:53

Unnið verði ítarlegt varðveislumat vegna Sundhallar Keflavíkur

Með tilvísun í bréf Minjastofnunar til Reykjanesbæjar frá 12. apríl 2018 óskar Minjastofnun Íslands eftir að húsafriðunarnefnd leggi sjálfstætt mat á varðveislugildi Sundhallar Keflavíkur við Framnesveg 9, Reykjanesbæ. Jafnframt er óskað álits nefndarinnar á því hvort rétt sé að leggja til friðlýsingu hússins ef ekki reynist unnt að tryggja varðveislu þess í deiliskipulagi.
 
Nefndin leggur til við Minjastofnun að unnið verði ítarlegt varðveislumat og hluti af því mati verði heildarúttekt á tæknilegu ástandi hússins, framkvæmd af fagmönnum. Jafnframt verði unnin frumkostnaðaráætlun um viðgerð á húsinu. Kostnaður við gerð úttektarinnar verði greiddur úr húsafriðunarsjóði. 
 
Nefndin telur rétt að á grundvelli þessarar úttektar verði tekin ákvörðun um friðlýsingu hússins.
 
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar var afgreiðslu málsins frestað.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024