Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Unnið að hringtorgi á gatnamótum Faxabrautar og Hringbrautar
Hér verður sett upp hringtorg.
Miðvikudagur 13. september 2017 kl. 10:14

Unnið að hringtorgi á gatnamótum Faxabrautar og Hringbrautar

-Áætluð verklok eru um næstu mánaðarmót

Næstu daga og vikur verður unnið að gerð hringtorgs á gatnamótum Faxabrautar og Hringbrautar í Reykjanesbæ. Reynt verður eftir fremsta megni að hafa gatnamótin opin á morgnana vegna umferðar en að öðru leyti verða gatnamótin lokuð eftir þörfum á meðan framkvæmdum stendur.

Ökumenn eru beðnir um að virða þessar takmarkanir á umferð. Stefnt er að framkvæmdum verði lokið um mánaðarmót september/október.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024