HSS
HSS

Fréttir

Unnið að gerð ökugerðis á MotoPark-svæðinu
Laugardagur 6. febrúar 2010 kl. 10:00

Unnið að gerð ökugerðis á MotoPark-svæðinu


Stofnað hefur verið félag um nýtt ökugerði við vegamót Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar. Nafn félagsins er Ökugerði ehf og er stefnt að því að opna æfingabrautir með vorinu.

Forráðamenn félagsins kynntu ökugerðið nýverið fyrir fulltrúum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Vegagerðinni, Umferðarstofu, Rannsóknarnefnd umferðarslysa og fleiri aðilum. Ólafur Kr. Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins en aðaleigandi þess eru Páll Harðarson og Ágústína Haraldsdóttir, eigendur Nesbyggðar. Sagði Páll við kynninguna að í stað þess að selja jarðvinnutæki úr landi eða láta þau standa ónotuð hefði hann ákveðið að leggja út í þessar framkvæmdir.

Framkvæmd hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og er verkið nú hafið. Búið er að merkja svæðið, flytja hús á staðinn og unnið er að lokafrágangi teikninga og annarri útfærslu. Um er að ræða áframhald á því svæði sem skipulagt hafði verið undir ökugerði, go-kart braut og kappakstursbraut fyrir nokkrum árum undir merkjum MotoPark.

----

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Mynd - Draumurinn um MotoPark til vinstri - raunveruleikinn til hægri. Þar verður nýja ökugerðið.