Unnendur flugeldasýninga fá nóg fyrir sinn snúð í kvöld

Björgunarsveitin Skyggnir verður með skoteldasýningu á auðu svæði við Vogatjörn í Vogum og þar rétt hjá verður þrettándabrenna. Sýningin hefst kl. 20:30.
Björgunarsveitin Þorbjörn verður með skoteldasýningu vestan við Grindavík við svokallað Litlubót og þar rétt hjá verður þrettándabrenna.
Sýningin verður á tímabilinu 19:00 –20:00.