Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • United Airlines hefur flug til Chicago
    Fyrstu ferð United Airlines milli Keflavíkurflugvallar og Chicago O´Hare alþjóðaflugvallar var fagnað með vatnsboga.
  • United Airlines hefur flug til Chicago
Þriðjudagur 6. júlí 2021 kl. 05:17

United Airlines hefur flug til Chicago

Bandaríska flugfélagið United Airlines flaug í fyrsta sinn beint milli Keflavíkurflugvallar og Chicago. Bandarískt flugfélag hefur ekki áður boðið upp á beint flug á þessari leið. Fyrstu ferð félagsins milli Keflavíkurflugvallar og Chicago O´Hare alþjóðaflugvallar var fagnað með vatnsboga í því tilefni.

Áætlun United gerir ráð fyrir að flogið verði milli Keflavíkurflugvallar og Chicago til 4. október. Til viðbótar þá flýgur félagið einnig frá Íslandi til New York (Newark). Það flug hófst 3. júní síðastliðinn og stendur til 30. október en flogið er daglega til beggja áfangastaða.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

  „Það er okkur mikil ánægja að taka á móti fyrsta flugi United Airlines frá Chicago til Íslands,“ sagði Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Sú ákvörðun United Airlines að bæta Chicago við sem nýjum áfangastað er skýrt merki um það hve vinsælt Ísland er og verður áfram þegar heimsfaraldrinum sleppir. Hún er einnig til marks um mikla eftirspurn eftir ferðalögum frá Bandaríkjunum til Íslands. Bandaríkin eru mikilvægur markaður fyrir okkur og United Airlines mikilsmetinn samstarfsaðili okkar.“

Bob Schumacher, sölustjóri United, sagði þessa nýju þjónustu stækka leiðarkerfi þeirra í Evrópu enn frekar. „Með ákjósanlegri brottfarar- og komutíma býðst viðskiptavinum okkar frá Íslandi enn meira úrval ferðamöguleika og möguleikinn á að taka tengiflug frá tengistöð okkar á Chicago O'Hare til yfir 110 áfangastaða víðs vegar um Ameríku á auðveldan hátt.“