Bygg
Bygg

Fréttir

Ungmenni á Suðurnesjum selja SÁÁ Álfinn
Þriðjudagur 10. maí 2016 kl. 14:05

Ungmenni á Suðurnesjum selja SÁÁ Álfinn

Árleg álfasala SÁÁ hefst um allt land í dag, þriðjudaginn 10. maí, og stendur fram á næsta sunnudag, 15. maí. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert og rennur allur ágóðinn  til þjónustu við ungt fólk, svo sem afeitrun, meðferð, sálfræðiþjónustu barna eða aðra þjónustu við fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga.

Salan er þó ekki aðeins liður í fjáröflun SÁÁ því að sölufólk á vegum íþróttafélaga og annarra samtaka og hópa nýta sölulaunin til að greiða fyrir ferðalög og annað félagsstarf. Meðal þeirra sem selja Álfinn á Suðurnesjum í ár eru 4. flokkur karla í fótbolta hjá Keflavík og 3. flokkur karla í fótbolta í Grindavík. Þá munu nemendur úr 10. bekk grunnskólanna í Garði og Sandgerði, sem og hópur drengja úr körfuknattleiksdeild UMFN selja Álfinn næstu daga.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn