Ungmennanámskeið SamSuð hefst í dag
SamSuð mun halda námskeið fyrir fulltrúa í nemenda- og unglingaráðum á Suðurnesjum föstudaginn 18. október 2002. Námskeiðið fer fram í félagsheimilinu Glaðheimum í Vogum, hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 15:00.Tilgangur þessa námskeiðs er að styrkja unglingana sem sæti eiga í ráðunum þannig að þau verði betur í stakk búinn til að takast á við verkefni komandi vetrar. Þess má geta að Æskulýðsráð Hafnarfjarðar og Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hafa staðið fyrir svipuðum námskeiðum fyrir unglinga á sínum svæðum. Unglingar af öllum Suðurnesjum munu taka þátt í námskeiðinu og er búist við rúmlega 80 þátttakendum.
Ungmennanámskeiðið er einn af mörgun atburðum sem SamSuð stendur fyrir í vetur. Aðrir atburðir sem verða á vegum samtakanna eru m.a. Billiardmót SamSuð 19. október, starfsmannanámskeið SamSuð 16. nóvember og Karaokekeppni SamSuð í byrjun janúar.