MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Ungmennagarður rís í Reykjanesbæ
Mánudagur 24. júní 2013 kl. 14:03

Ungmennagarður rís í Reykjanesbæ

Þann 21. júní s.l. hófst fyrsti hluti framkvæmda við svokallaðan ungmennagarð sem mun rísa við 88 Húsið. Nýstofnað Ungmennaráð Reykjanesbæjar benti á að það mætti vera meira í boði fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu.

Því var farið þess á leit við ráðið að þau myndu koma með hugmyndir um hvað ætti heima í svona garði. Meðal þess sem þau bentu á var ærslabelgur eins og margir þekkja úr Húsafelli. Einnig ræddu þau um aparólu, skautasvell og margt fleira áhugavert.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar kallaði ráðið til fundar um hvítasunnuna og fór yfir hugmyndir ungmennanna og í framhaldinu hófst hönnun og nú eru framkvæmdir hafnar.

Spennandi tímar framundan í Reykjanesbæ!

Stefán Bjarkason
Framkvæmdastjóri
Íþrótta- og tómstundasviðs (ÍT)

Bílakjarninn
Bílakjarninn