Unglingastig Holtaskóla flyst tímabundið í Hljómahöll
Viðgerðir á Myllubakkaskóla og Holtaskóla í Reykjanesbæ vegna mygluskemmda gætu kostað sjö milljarða á þremur árum. Þetta kemur fram í viðtali við Friðjón Einarsson, formann bæjarráðs Reykjanesbæjar, í Morgunblaðinu.
Sérstök nefnd fylgir myglumálum eftir. Föstum verkferlum er fylgt við hvert mál sem kemur upp. Friðjón segir að helstu ástæður rakaskemmda séu skortur á viðhaldi og ekki nógu mikið eftirlit með byggingum.
Ákveðið hefur verið að ráðast í umfangsmiklar endurbætur í Holtaskóla. Til þess að flýta fyrir framkvæmdum og til að tryggja nemendum og starfsfólki heilsusamlegt vinnuumhverfi munu 8.–10. bekkir skólans hafa tímabundið aðsetur í Hljómahöll og Tónlistarskólanum út þetta skólaár.
Holtaskóli mun nýta salina Merkines og Berg ásamt kennslustofum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Áfram verður óbreytt starfsemi í Stapa og hægt að bóka hann undir hvers konar viðburði. Þá verður Rokksafn Íslands áfram opið en opnunartími safnsins er frá kl. 11:00 til 18:00. Starfsemi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar helst einnig óskert.