Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Fréttir

Unglingar til mikillar fyrirmyndar á Ljósanótt
Unga fólkið var til fyrirmyndar.
Mánudagur 7. september 2015 kl. 14:52

Unglingar til mikillar fyrirmyndar á Ljósanótt

Nýafstaðin Ljósanótt 2015 í Reykjanesbæ tókst mjög vel í alla staði. Engin alvarleg mál komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum sem tengdust hátíðinni, segir í tilkynningu lögreglu.

Athvarf fyrir unglinga var opnað á laugardagskvöld eins og venja er. Þangað var enginn færður og enginn leitaði þar aðstoðar. Lögreglumenn fóru þar að auki um svæðið og inn á skemmtistaðina og þar var allt í stakasta lagi.

Ljósanótt var vel sótt og skemmtu gestir sér af hjartans list, enda boðið uppá fjölmargt fyrir alla aldurshópa.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100