Unglingar brutust inn í skóla
Tveir fimmtán ára piltar voru staðnir að innbroti í Stóru - Vogaskóla í Sveitarfélaginu Vogum í fyrradag. Lögreglumaður á frívakt sá þá skríða inn um brotinn glugga á skólabyggingunni og gerði lögreglunni á Suðurnesjum þegar viðvart.
Piltarnir höfðu brotið rúðu með grjóthnullungi. Þannig komust þeir inn í smíðastofu skólans þar sem þeir rótuðu til. Málið fer í hefðbundinn farveg, meðal annars til barnaverndarnefndar, með tilliti til ungs aldurs piltanna.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				