HSS
HSS

Fréttir

Unglingar á Suðurnesjum standa sig vel - færri drekka og reykja
Mánudagur 19. október 2020 kl. 08:42

Unglingar á Suðurnesjum standa sig vel - færri drekka og reykja

Mjög hefur dregið úr reykingum og áfengisdrykkju unglinga á Suðurnesjum undanfarna áratugi. Á Suðurnesjum voru 10. bekkingar aðeins ólíklegri til að hafa prófað kannabis en jafnaldrar þeirra sem búa annars staðar á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun meðal 10. bekkinga á Íslandi.

Á Suðurnesjum hafði lægra hlutfall prófað að reykja sígarettur en á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni utan Suðurnesja. Hlutfallið var einnig lægra á Suðurnesjum meðal þeirra sem höfðu reykt 40 sinnum eða oftar en á samanburðarsvæðunum. Aðeins færri strákar en stelpur á Suðurnesjum höfðu einhvern tímann reykt sígarettur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Líkt og með reykingar þá hefur dregið mjög úr áfengisneyslu íslenskra unglinga á liðnum áratugum. Um 23% unglinga í 10. bekk á Suðurnesjum sögðust hafa drukkið áfengi síðastliðið ár. Þetta er svipað hlutfall og á höfuðborgarsvæðinu samantekið en lægra en á landsbyggðinni. Stelpur á Suðurnesjum voru líklegri til að hafa prófað að drekka áfengi en strákar síðustu tólf mánuði. Hlutfall þátttakenda á Suðurnesjum sem taldi erfitt að ná í sterkt áfengi var svipað og í viðmiðunarhópunum.

Hlutfall þeirra sem hefur einhvern tíma prófað kannabis hefur heldur minnkað yfir þau rúm tuttugu ár sem rannsóknin spannar hér á landi. Á Suðurnesjum voru 10. bekkingar aðeins ólíklegri til að hafa prófað kannabis en jafnaldrar þeirra sem búa annars staðar á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Á Suðurnesjum hafði svipað hlutfall stráka og stelpna prófað kannabi.

Þetta kemur fram í  ESPAD-könnun 2019 en þar er könnuð útbreiðsla reykinga ásamt áfengis- og vímuefnaneyslu meðal íslenskra unglinga. Í samantektarskýrslu sem gefin hefur verið út eru helstu niðurstöður ESPAD 2019 kynntar varðandi 10. bekkinga á Suðurnesjum. Niðurstöður úr könnuninni eru mjög jákvæðar fyrir unglinga á Suðurnesjum. Markhópur rannsóknarinnar voru allir fimmtán og sextán ára nemendur í 10. bekk á Íslandi þegar könnunin var lögð fyrir vorið 2019. Alls tóku 1.250 (48,6%) strákar og 1.323 (51,4%) stelpur þátt í rannsókninni á landsvísu, þar af 105 strákar af Suðurnesjum og 109 stelpur.