Fimmtudagur 6. september 2007 kl. 09:15
Ungir fíkniefnaneytendur brutust inn á Vallarsvæðinu

Fimm ungmenni á aldrinum 16-17 ára, þrír piltar og tvær stúlkur, voru handtekin inni á fyrrverandi veitinga- og keilustað á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Höfðu þau brotist þar inn og eru grunuð um að hafa farið þar nokkrum sinnum áður. Ungmennin eru að auki grunuð um að hafa verið þar við fíkniefnaneyslu og að hafa unnið þar nokkur eignaspjöll. Þau voru vistuð í fangaklefum lögreglunnar og færð til skýrslutöku í morgun.
Loftmynd/Oddgeir Karlsson - Séð yfir varnarsvæðið gamla