Ungir drengir unnu skemmdarverk í Grindavík
 Lögregla var kölluð að nýbyggingu í Grindavík í gær en þar höfðu ungir drengir unnið töluverð skemmdarverk.
Lögregla var kölluð að nýbyggingu í Grindavík í gær en þar höfðu ungir drengir unnið töluverð skemmdarverk.
Þrjár rúður höfðu verið brotnar auk þess sem áður hafa verið brotnar 6 aðrar rúður í húsinu. Lögreglan hafði uppi á piltunum og telst málið upplýst.
Á næturvaktinni var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur, hann var mældur á 121 km hraða á Reykjanesbraut, þar sem leyfður hraði er 90 km. Þá var annar ökumaður kæeður fyrir að nota ekki bílbelti við aksturinn.





 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				