Ungar stúlkur í sæti bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar
Það mæta nýir bæjarfulltrúar í öll sæti á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ á morgun.Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa ákveðið að taka þátt í verkefninu „Auður í krafti kvenna -dæturnar með í vinnuna“ á morgun, 18. apríl. Á fundi bæjarstjórnar á morgun munu ungar stúlkur skipa sæti bæjarfulltrúa í upphafi fundar og flytja ályktun sem bæjarstjórn tekur síðan til afgreiðslu strax á eftir.