Sunnudagur 27. apríl 2003 kl. 10:31
Ungar skátastúlkur sæmdar heiðursmerki skáta

Tvær níu ára skátastelpur, þær Kolfinna Jóna Baldursdóttir og Sigrún Guðbjörg Magnúsdóttir, úr skátafélaginu Heiðarbúar í Reykjanesbæ voru sæmdar bronsheiðursmerki skáta á sumardaginn fyrsta á skátamessu- og vígslu í safnaðarheimilinu í Sandgerði. Stúlkurnar komu fyrr í vetur í veg fyrir að illa færi þegar bróðir annarar þeirra slasaði sig. Eftir að hafa lært smá skyndihjálp í skátunum og neyðarnúmerið 112 í skólanum voru þær ákveðnar í að bjarga drengnum, Atla Reyni, sem skarst mjög illa á handlegg.Í viðtali sem Stöð 2 tók við þær í vetur segjast þær hafa orðið hræddar en engu að síður vitað hvað þær ættu að gera og með hjálp Neyðarlínunnar tókst þeim að búa um sár Atla Reynis áður en hann missti hættulega mikið blóð. Þessar ungu skátastúlkur eru sannarlega hetjur og góð fyrirmynd fyrir jafnaldra sína og þá sem eldri eru!