Unga fólkið um opin landamæri
„Mikilvægt að hafa stýrt flæði fólks á milli landa" - „Viljum við ekki að landið okkar sé fjölbreytt?“
Dagur Funi Brynjarsson:
Við búum á eyju þar sem það væri rosalega auðvelt að vera með lokuð landamæri og strangt eftirlit með innflutningi. En er það samt eitthvað sem við viljum? Vissulega er mikilvægt að hafa gott eftirlit með hlutunum, en viljum við ekki að fólk geti flutt til landsins í von um betra líf? Viljum við ekki að landið okkar sé fjölbreytt og fullt af mismunandi menningu? Fyrir mér er allavega mikilvægt að vera með opin landamæri. Móttaka flóttamanna er einnig umdeilt mál. Við getum ekki tekið við öllum, en mér finnst sjálfsagt að taka við þeim sem við getum. Fólkið er í neyð, á flótta frá stríðsástandi í eigin heimalandi og þarf aðsetur. Hvað myndum við vilja að gert væri fyrir okkur ef við værum í þeirra sporum?
Laufey Ebba Eðvarðsdóttir:
Mér finnst ekki sniðugt að opna öll landamæri. Á Íslandi er há skattbyrði og með því erum við að greiða fyrir ákveðinn þjónustustuðul í landinu, til dæmis varðandi heilbrigðisþjónustu, þó þar megi margt bæta. En greiðsluþungi sem hvílir á einstaklingum er ekki mikill þegar upp koma veikindi miðað við mörg önnur lönd og þá er, að mínu mati, ekki sniðugt að hver sem er geti komið hingað bara til þess að nýta sér þessa þjónustu án þess að hafa lagt eitthvað til samfélagsins. Það er samt sem áður eftirsóknarvert að búa í samfélagi þar sem fjölbreytileiki í menningu og mannlífi er mikill og því myndi ég ekki vilja loka landamærum alveg. Þó finnst mér að Ísland eigi að taka við fleiri flóttamönnum og aðstoða betur þá sem hingað eru komnir við að aðlagast samfélaginu. Til að draga þetta saman þá finnst mér mikilvægt að hafa stýrt flæði fólks á milli landa.
Gunnar Dagur Jónsson:
Þegar ég sá alla þessa umfjöllun um Trump og að hann hefði lokað landamærum Bandaríkjanna fyrir ákveðnum þjóðernum varð ég vonsvikinn og sár, en á sama tíma mjög ánægður með það að búa á Íslandi og að vera Íslendingur. Við gerum vel í því að taka á móti flóttafólki. Samt sem áður þarf að bæta alla umgjörð í kringum þetta ferli. Við getum tekið á móti mun fleiri flóttamönnum en þurfum að stíga varlega til jarðar þar. Við höfum frábært tækifæri til þess að læra af Svíum í þessum málum, af mistökum og því sem var rétt gert. Opin landamæri Íslands eru einnig mjög mikilvæg fyrir alþjóðaviðskipti okkar og það að geta stundað inn- og útflutning.
Margrét Edda Arnardóttir:
Mér finnst mjög sniðugt að vera með opin landamæri, þar sem það auðveldar okkur að ferðast milli landa sem eru í Schengen og við þurfum ekki að fara í gegnum vegabréfaeftirlit, sem sparar okkur tíma og biðraðir. Að vera með opin landamæri auðveldar einnig lögreglu að komast að upplýsingum um aðra einstaklinga og vörur í gegnum Schengen-upplýsingakerfið, en þar er meðal annars hægt að fylgjast með eftirlýstum glæpamönnum og týndum einstaklingum sem stuðlar að öryggi okkar. Þó svo að það sé auðveldara fyrir alls konar fólk að komast í gegnum landamærin, þá tel ég að við séum betur sett í Schengen heldur en ekki, því ég tel þetta auðvelda samskipti og samstarf milli landanna.