Bygg
Bygg

Fréttir

Laugardagur 15. apríl 2017 kl. 06:00

Unga fólkið um gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu

„Myndi bæta samfélagið til muna“ - „Fleiri myndu leita sér hjálpar“

Alexander Hauksson:
„Flest þurfum við að nýta okkur heilbrigðisþjónustu einhvern tímann á ævinni, hvort sem það er vegna andlegra eða líkamlegra veikinda. Heilsa er grundvallaratriði fyrir gott og hamingjusamt líf og því er mikilvægt að aðgengi að heilbrigðisþjónustu standi öllum til boða, óháð tekjum, aldri, kyni eða uppruna. Nú þegar mikil aukning er á fólki sem greinist með kvíða, þunglyndi eða önnur geðtengd vandamál hefur þörfin fyrir gjaldfrjálsa geðheilbrigðisþjónustu orðið háværari krafa í þjóðfélaginu. Einnig er það skammarlegt að fólk sem þjáist af langvinnum veikindum þurfi oftar en ekki að eyða öllum sínum peningum til margra ára í heilbrigðisþjónustu. Á meðan skattar eru eins háir og þeir eru finnst mér sjálfsagt mál að málum verði forgangsraðað á þann hátt að grunnstoðir samfélagsins skipti mestu máli.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þóra Lind Halldórsdóttir:
„Andlega hliðin er ekki síður mikilvæg en sú líkamlega og því ætti gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta að vera sjálfsagt mál. Það ætti ekki að vera neinn munur á því að fara í almenna heilsufarsskoðun reglulega eða að fara í sálfræðitíma. Að tala um líðan sína við fagaðila er hollt og nauðsynlegt fyrir alla, sama á hvaða aldri eða hvar þú ert staddur í lífinu og því ætti fólk ekki að þurfa að hafa áhyggjur af kostnaði þegar það kemur að þeim málum. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta myndi bæta samfélagið til muna.“

Brynja Ýr Júlíusdóttir:
„Mér finnst sjálfsagt að boðið sé upp á gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu. Allt of margir í dag glíma við einhver andleg veikindi og þurfa nauðsynlega hjálp, en þurfa að borga svo mikið fyrir sálfræðiþjónustu, sem langflestir hafa ekki efni á. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta myndi gera það að verkum að fleiri myndu leita sér hjálpar og þá væri mikið auðveldara að kljást við veikindin sín. Þannig ég er algjörlega á því að sálfræðiþjónusta ætti að vera gjaldfrjáls.“

Þórhallur Arnar Vilbergsson:
„Sálfræðiþjónusta á alltaf að vera fyrsti kostur á undan lyfjameðferð. Sálfræðingur getur komist að rót vandans og unnið úr meininu á huglægan hátt. Fólk hefur almennt ekki efni á því að fara til sálfræðings vegna mikils kostnaðar og þar af leiðandi verður lyfjameðferðin, því miður, eina leiðin til betrunar. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta væri að mínu mati mjög skynsamleg fyrir allt þjóðfélagið.“