Laugardagur 11. maí 2002 kl. 13:16
Ung stúlka grunuð um ölvun við akstur
Lögreglan í Keflavík hafði í nótt afskipti af ungri stúlku sem var grunuð um ölvun við akstur. Í ljós lkom að stúlkan sem er 17 ára var réttindalaus á bifreið sinni og var því kærð fyrir athæfið. Að öðru leyti var rólegt á vakt lögreglunar í nótt.