Undri fær Hvíta svaninn
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra mun veita veita S. Hólm umhverfismerkisleyfi fyrir Undra iðnaðarhreinsiefnin á morgun.
Undri er fyrsta iðnaðarhreinsiefnið sem hlýtur vottun Norræna Umhverfismerkisins á Íslandi en Ísland er einmitt í forsvari fyrir viðmiðunarreglurnar sem liggja til grundvallar leyfisveitingunni.Undri var þróaður á Iðntæknistofnun Íslands með styrk frá Rannsóknarráði Íslands. Hann var þróaður með það í huga að nýta kindamör, sem er vannýtt aukaafurð, í hreinsiefni sem nota mætti til að hreinsa fitu, olíu og tjöru sem til fellur í ýmsum
iðnaði. Þessi nýting á hráefni,sem að öðrum kosti yrði að farga, eykur enn á gildi þessarar framleiðslu fyrir umhverfið. Einnig kemur þessi viðurkenning á Undra iðnaðarhreinsiefnunum sér vel fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem eru með yfirlýsta umhverfisstefnu þar sem öllum ráðum er beitt til að valda sem minnstri mengun í náttúrunni.
Framleiðsla á Undra hreinsiefnunum hófst árið 1998 og hefur vaxið ár frá ári. Nú standa yfir samningar við norska byggingarvörukeðju um dreifingu á Undra Penslasápunni í Noregi.
Fyrirtækið S. Hólm framleiðir í dag Undra Penslasápu, Undra tjöruhreinsi, Undra iðnaðarhreinsi, Undra línusápu og Undra kvoðuhreinsi.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði að Stapabraut 3b í Reykjanesbæ. Hjá fyrirtækinu starfa Sigurður Hólm Sigurðsson framkvæmdastjóri, Eygló Hjálmarsdóttir skrifstörf, Ragnar Ragnarsson gæðastjóri og Örn Þór Úlfsson makaðsstjóri.
Afhending umhverfismerkisleyfi Hvíta svansins fer fram hjá S.Hólm að Stapabraut 3b í Reykjanesbæ fimmtudaginn 14. mars kl.14 og gefst áhugasömum um leið tækifæri á að skoða fyrirtækið. Boðið verður upp á léttar veitingar.