Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Undirskriftarsöfnun vegna íbúakosningar 2. júlí
Frá mótmælum vegna deiluskipulagsins í vor.
Þriðjudagur 30. júní 2015 kl. 10:20

Undirskriftarsöfnun vegna íbúakosningar 2. júlí

- um breytingar á deiluskipulagi í Helguvík.

Undirskriftasöfnun, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti fyrir sitt leyti 2. júní sl. að færi fram skv. heimild í sveitarstjórnarlögum, hefst fimmtudaginn 2. júlí 2015 og stendur í 4 vikur eða til miðnættis fimmtudagsins 30. júlí 2015. Frá þessu er greint á vefsíðu Reykjanesbæjar. 

Tilgangurinn er að safna nægilega mörgum undirskriftum til þess að fram fari íbúakosning um hvort rétt hafi verið að breyta deiliskipulagi í Helguvík vegna væntanlegs kísilvers. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ábyrgðarmenn undirskriftasöfnunarinnar eru Ellert Grétarsson, Guðmundur Auðunn Gunnarsson og Gunnar Eyjólfsson. 

Undirskriftasöfnunin verður bæði rafræn og með hefðbundnu sniði á pappír. 

Ábyrgðarmenn munu kynna nánar fyrirkomulag undirskriftasöfnunarinnar.