HSS
HSS

Fréttir

Undirrituðu sáttmála gegn einelti
Miðvikudagur 14. desember 2011 kl. 10:18

Undirrituðu sáttmála gegn einelti

Í gær undirrituðu nemendur grunnskóla Grindavíkur sáttmála gegn einelti. Við undirritun hétu nemendur því að vinna af alefli og einurð gegn einelti og standa vörð um rétt allra til að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Þeir sem undurrituðu sáttmálann lofuðu sérstaklega að gæta réttar barna og ungmenna sem og allra þeirra sem ekki ættu sér málsvara eða sterka rödd. Þá ætluðu allir að vera góðar fyrirmyndir og leggja sitt af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

Meðfylgjandi mynd var tekin í gær þegar Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri, mættu í skólann. Róbert var fyrstur til að skrá nafn sitt á sérstaka síðu þar sem undirskriftum allra er safnað. Eftir að nemendur höfðu einnig ritað nafn sitt á blað fengu þeir gult armband með áletruninni „jákvæð samskipti". Armbandið á að minna okkur á það að framundan eru tímar friðar og jákvæðra samskipta í Grindavík. Ef einhver gleymir sér er gott að hafa armandið til að minna sig á hversu mikilvægt er að hafa þessa þætti í lagi.

Meginmarkmið með þessari aðgerð er að fylgja eftir útgáfu á bæklingi um einelti sem gefinn var út á dögunum í Grindavík og síðast en ekki síst vekja samfélagið til umhugsunar um þessi mál og fá opna umræðu um eineltismál almennt og hvetja til samstöðu í jákvæðum samskiptum.

Nánar um málið á vefsíðu Grindavíkurbæjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn