Undirbúningur kísilvers Thorsil á lokastigi
- allt að 99 MW orkuþörf mætt með samkomulagi við Landsvirkjun og HS Orku
Thorsil og Landsvirkjun hafa komist að samkomulagi um drög að rafmagnssamningi milli félaganna, sem verða nú send til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Gangi áætlanir eftir mun Landsvirkjun afhenda Thorsil allt að 67 MW fyrir kísilver félagsins í Helguvík.
Áður hafði Thorsil undirritað samning við HS Orku um raforkukaup og mun Thorsil þannig tryggja sér alla nauðsynlega orku vegna kísilvers félagsins í Helguvík eða allt að 99 megavött. Fyrirvarar eru í samningunum um samþykki stjórna félaganna, endanlega fjármögnun og að samningurinn við Landsvirkjun uppfylli skilyrði ESA.
„Með útgáfu Umhverfisstofnunar á starfsleyfi fyrir kísilverið og gerð samninga um kaup á raforku er undirbúningur verkefnisins nú á lokastigi. Í framhaldinu er gert ráð fyrir hægt verði að undirrita fjármögnunarsamninga á næstu mánuðum og að framkvæmdir hefjist á fyrri helmingi næsta árs,“ segir John Fenger stjórnarformaður Thorsil í tilkynningu frá félaginu.