HSS
HSS

Fréttir

  • „Undirbúin fyrir það versta“
  • „Undirbúin fyrir það versta“
Laugardagur 29. nóvember 2014 kl. 20:56

„Undirbúin fyrir það versta“

– segir Haraldur Haraldsson hjá Björgunarsveitinni Suðurnes

Íbúar á Suðurnesjum eru hvattir til að fergja allt lauslegt og koma kerrum, fellihýsum og öðru í skjól. Trampólín eiga að vera farin úr öllum görðum og ágætt væri að binda ruslatunnuna fasta. Á morgun, sunnudag, er von á miklum veðurofsa. Leita þarf aftur til ársins 1991 eftir viðlíka veðri en þá varð gríðarlegt eignatjón snemma í febrúar það ár.

„Við erum undirbúin fyrir það versta,“ sagði Haraldur Haraldsson, formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes, í samtali við Víkurfréttir í kvöld. Björgunarsveitin var í dag að byrgja sig upp af timbri, plasti og nöglum, enda veðurspáin ekki góð.

„Við hvetjum fólk til að vera í sambandi fyrr en síðar ef það verður vart við eitthvað óvenjulegt hjá sér. Ef það heyrir undarleg hljóð í þakinu, þá er betra að fá björgunarsveitina strax heldur en þegar þakið er fokið,“ sagði Haraldur.

Sömu sögu er að segja af öðrum björgunarsveitum á Suðurnesjum. Þar eru allir viðbúnir því versta og mannskapurinn undirbúinn í krefjandi útköll við erfiðar aðstæður.

Hjá Björgunarsveitinni Suðurnes verður staðin vakt frá kl. 10 á sunnudagsmorgun og allt þar til veðrið er gengið yfir en búast má við hámarki í veðurhamnum við Faxaflóa annað kvöld.

Haraldur bendir á að öll símtöl eða óskir um aðstoð björgunarsveitar eigi að fara í gegnum Neyðarlínuna í síma 112. Það skiptir miklu máli að útköll komi eftir réttri boðleið. Fólk á hins vegar ekki að vera hrætt við að óska eftir aðstoð björgunarsveita. Ef fólk ræður ekki sjálft við að fergja hluti sem geta valdið tjóni, þá á fólk hiklaust að óska eftir aðstoð.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn