Fréttir

  • Undirbúa móttöku allt að 1500 Sunnlendinga
    Allir sem mættu í fjöldahjálparstöðina voru skráðir við komu og brottför. Það var mjög rólegt í skráningunni þegar myndin var tekin.
  • Undirbúa móttöku allt að 1500 Sunnlendinga
    Gestum fjöldahjálparstöðvarinnar var boðið upp á matarmikla kjötsúpu. VF-myndir: Hilmar Bragi
Mánudagur 20. október 2014 kl. 10:33

Undirbúa móttöku allt að 1500 Sunnlendinga

– gætu þurft að rýma Suðurland verði gos í Bárðarbungu

Rauði krossinn á Suðurnesjum gerir ráð fyrir að taka á móti allt að 1500 Sunnlendingum í fjöldahjálparstöðvar á Suðurnesjum komi til eldgoss í Bárðarbungu. Rauði krossinn undirbýr nú mögulega rýmingu á Suðurlandi þar sem tekið yrði á móti 13.500 íbúum af Suðurlandi. Notast verður við skóla á Suðurnesjum og húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Þrjár fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar á Suðurnesjum í gær í landsæfingu Rauða kross Íslands. Sjálfboðaliðar RKÍ stóðu þar vaktina rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að. Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.

Nokkuð stöðugur straumur fólks var á fjöldahjálparstöðvarnar í gær þar sem boðið var upp á matarmikla kjötsúpu. Sögðu Rauðakrossfélagar að æfingin í gær væri góður undirbúningur fyrir hugsanlega móttöku Sunnlendinga á flótta undan gosi í Bárðarbungu.


Gestum fjöldahjálparstöðvarinnar var boðið upp á matarmikla kjötsúpu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024