Heklan
Heklan

Fréttir

Undir áhrifum með piparúða
Þriðjudagur 5. nóvember 2019 kl. 09:02

Undir áhrifum með piparúða

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð um helgina viðurkenndi neyslu fíkniefna. Í bifreið hans fundust meint fíkniefni svo og á heimili hans, þar sem leit fór fram að fenginni heimild. Hann játaði að eiga efnin.

Þá framvísaði annar karlmaður fíkniefnum sem hann geymdi í bílskúr þegar lögregla hafði tal af honum vegna óskylds máls.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Enn fremur var farþegi í bifreið, sem lögregla stöðvaði vegna gruns um vímuefnaakstur, með piparúða og greiðslukort sem hann átti ekki. Sýnatökur bentu til þess að ökumaður bifreiðarinnar væri undir áhrifum fíkniefna.

VF jól 25
VF jól 25