Undir áhrifum fíkniefna á stolnum bílaleigubíl
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af fyrr í vikunni reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda auk þess sem hann ók stolinni bílaleigubifreið. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð ásamt farþega í bifreiðinni. Í henni fundust munir, magnari, fartölva og GPS – tæki, sem lögregla telur vera þýfi. Þá fannst amfetamín í fórum farþegans.
Annar ökumaður ók ölvaður og sviptur ökuréttindum. Bifreiðin sem hann ók var skráð í akstursbann en var þó með skoðunarmiða 2022. Ökumaðurinn kvaðst hafa keypt miðann og sett á bifreiðina. Skráningarnúmer voru því farlægð af henni.
Á annar tug ökumanna voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Fáeinir þeirra voru ýmist með útrunnin ökuréttindi eða höfðu verið sviptir þeim. Sá sem hraðast ók mældist á 136 km hraða á Reykjanesbraut.