Undir áhrifum áfengis og fíkniefna og keyrði á ljósastaur
Í hádeginu í gær var tilkynnt um umferðaróhapp í Sandgerði þar sem bifreið var ekið á ljósastaur. Lögreglan fór á staðinn. Í ljós kom að ökumaðurinn var óslasaður. Hann er hinsvegar grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Kom einnig í ljós að hann er sviptur ökuréttindum. Var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöðina. Ökumaður þessi hefur margsinnis komið við sögu vegna samskonar mála.
.