Fréttir

Undanfari sjúkrabíls í alvarlegu slysi
Sjúkrabíllinn var í forgangsakstri með slasaðan úr umferðarslysi á Suðurnesjum.
Mánudagur 17. október 2016 kl. 14:22

Undanfari sjúkrabíls í alvarlegu slysi

Ekið var á lögreglu á mótorhjóli á Reykjanesbraut við Hafnarfjörð nú áðan. Tveir eru alvarlega slasaðir í því slysi. Lögreglan var að ryðja leið fyrir sjúkrabíl í forgangsakstri frá Suðurnesjum þegar ekið var í veg fyrir mótorhjól lögreglunnar.

Sjúkrabíllinn var að flytja einstakling á sjúkrahús sem slasaðist í umferðarslysi á Reykjanesbraut nærri Rósaselstorgi um hádegisbil í dag. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um það slys aðrar en að það hafi verið alvarlegt.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024