Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Una niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála
Miðvikudagur 24. október 2018 kl. 14:38

Una niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki skuli fella úr gildi bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins um gjaldtöku á ytri hópbifreiðastæðum við Keflavíkurflugvöll. Samkvæmt bráðabirgðaákvörðuninni, sem tekin var þann 17. júlí síðastliðinn, var Isavia gert að stöðva gjaldtöku.
 
Samkeppniseftirlitið hefur þó á seinni stigum málsins lýst yfir að Isavia sé skylt að halda gjaldtöku áfram með breyttu verðlagi. Undir það tekur áfrýjunarnefndin í sínum úrskurði. Það er því er ljóst að í máli Samkeppniseftirlitsins um gjaldtöku á hópferðafyrirtæki sem sinna akstri til og frá flugvellinum er ekki deilt um hvort rétt sé að taka gjald fyrir afnot af ytri hópbifreiðastæðum við Keflavíkurflugvöll heldur hvert gjaldið eigi að vera og hvaða forsendur liggja til grundvallar gjaldinu.
 
„Þessi niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála er nú til skoðunar hjá Isavia og út frá þeirri athugun verður tekin ákvörðun um næstu skref,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia, í yfirlýsingu vegna niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
 
„Það er markmið félagsins að tryggja jafnan samkeppnisgrundvöll fyrir öll þau fyrirtæki sem bjóða upp á samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli og verður það leiðarljós okkar í þeirri vinnu sem nú er fram undan. Við munum því una þessari niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar og vinna að því að ná sátt á meðan Samkeppniseftirlitið lýkur sinni málsmeðferð vegna gjaldtökunnar.“
Public deli
Public deli