HSS
HSS

Fréttir

Umtalsvert magn fíkniefna haldlagt
Þriðjudagur 16. júní 2015 kl. 11:38

Umtalsvert magn fíkniefna haldlagt

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum haldlagt umtalsvert magn af fíkniefnum. Karlmaður, sem handtekinn var í tengslum við málið játaði eign sína á amfetamíni, sem fannst við húsleit, og viðurkenndi jafnframt að hann væri að selja efnin.

Upphaf máls var að farþegi í bifreið sem lögregla stöðvaði sást opna hurðina og henda plastpoka undir bílinn. Í pokanum reyndist vera talsvert magn fíkniefna, 20 grömm af amfetamíni, 20 e-töflur og smáræði af kannabis. Farþegi og ökumaður voru handteknir og færðir á stöð.

Í framhaldi af þessu var farið í húsleit í húsnæði í umdæminu, að fenginni heimild. Við leitina fundust þrjár krukkur með meintu amfetamíni, ein í frysti og tvær í verkfærakassa. Farþeginn ofangreindi játaði að eiga efnin. Að auki fundust kannabisefni og amfetamín sem húsráðandi viðurkenndi eign sína á.
Í húsleit í öðru óskyldu máli fundu lögreglumenn amfetamín í ísskáp. Viðurkenndi húsráðandi að eiga efnin.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Bílakjarninn
Bílakjarninn