Umræðukvöld um samræmd próf
Fundur, á vegum Foreldrafélaga og foreldraráða grunnskólanna í Reykjanesbæ, um samræmd próf verður haldinn í kvöld í sal Holtaskóla klukkan 20.
Fulltrúi Félags grunnskólakennara og aðstoðarskólastjóri Holtaskóla, Jóhann Geirdal flytja erindi á fundinum.
Allir foreldrar og áhugasamir um skólamál eru hvattir til að taka þátt. Aðgangur er ókeypis.
Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.
Myndin tengist málinu ekki.