Umhverfisvika hefst í Vogum í dag
– hreinsa upp ruslið í bænum
Nú þegar vorið er á næsta leiti munu íbúar Sveitarfélagsins Voga taka höndum saman um að gera bæinn snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst í dag, mánudaginn 22. maí og lýkur 29. maí.
Á heimasíðu sveitarfélagsins eru ýmsar tillögur lagðar fram um hvernig bæjarbúar geti lagt sitt af mörkum. Einnig er áhersla lögð á mikilvægi þess að flokka allt rusl. Þá verður íbúum boðið upp á að fjarlægja járnarusl, svo sem bílhræ eða annað sambærilegt og geta þeir skilið garðúrgang eftir í ruslapokum við lóðarmörk sem teknir verða fyrir þá.