Umhverfisstofnun: Ekki verði þrengt meira að Njarðvíkurfitjum

Samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar eru fitjar og leirur í Njarðvík verndaðar sem græn svæði. Við fyrirhugaða skipulagsbreytingu minnkar það svæði um 5,7 ha. Í erindi Reykjanesbæjar kemur fram að á því svæði sem um getur séu ekki lengur sjávarfitjar eða leirur þar sem það hafi verið notað sem jarðvegstippur til fjölda ára.
Tekið er fram í umsögn Umhverfisstofnunar að sjávarfitjar og leirur njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum um náttúruvernd.
Umhverfisstofnun telur jákvætt að gert sé ráð fyrir útivistargarði á því svæði sem skipulagstillagan tekur til en stofnunin telur jafnframt mikilvægt að svæðið ásamt Njarðvíkurfitjum verði skipulagt í heild sinni og þess verði gætt að framkvæmdir og umferð manna hafi ekki neikvæð áhrif á fuglalíf, segir í umsögn stofnunarinnar.
Þá telur Umhverfisstofnun að ekki eigi að afmarka stofnanasvæði alveg að ströndinni, betur færi að afmarka það svæði sem ætlað er undir útivistargarð sem opið svæði til sérstakra nota og það tengt með þeim hætti við útivistarsvæðið við Fitjarnar. Að öðrum kosti séu meiri líkur á að litið verði á svæðið sem framtíðar byggingarsvæði.
Umhverfisstofnun segir í áliti sínu að kjörið væri að koma upp fuglaskoðunaraðstöðu og fræðslu um fuglalíf svæðisins og tengja það göngustígum um Fitjarnar.
„Umhverfisstofnun hefur í umsögnum sínum um skipulagsáætlanir lagt áherslu á að afmarkað sér opið svæði meðfram strönd til að tryggja aðgengi almennings, enda hafa strandsvæði almennt mikið útivistargildi,“ segir í álitinu.
Mynd: Horft yfir fyrirhugað byggingasvæði á Fitjum.