Mánudagur 13. janúar 2003 kl. 10:41
Umhverfisspjöll á snyrtilegum Fitjum

Umhverfisspjöll hafa verið unnin á Fitjum síðustu daga. Svæðið hefur verið að taka stakkaskiptum síðustu vikurnar þar sem búið er að tyrfa stór svæði frá því í haust. Að sama skapi er svæðið viðkvæmt fyrir öllu raski þar sem úrkoma hefur verið mikil síðustu vikurnar og jarðvegur óvenju blautur. Opið svæði milli Njarðarbrautar 11 og 13 varð illa fyrir barðinu á óvarkárum ökumönnum á dögunum og er eins og kálgarður á eftir.Það er í raun óskiljanlegt hvað ökumaður bifreiðar hefur verið að vilja út í þetta "moldarsvað" sem var sléttað í haust og sáð í. Meðfylgjandi mynd sýnir hvernig svæðið var eftir meðferðina í síðustu viku.
Einnig hefur verið ekið yfir nýlagt torf við bílasölurnar á Fitjum en það hefur verið lagfært jafnharðan.