Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Umhverfisdagar á Suðurnesjum
Þriðjudagur 22. apríl 2014 kl. 06:57

Umhverfisdagar á Suðurnesjum

Dagana 22. til 26. apríl eru íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum hvattir til þátttöku í fegrun og snyrtingu umhverfisins. Íbúar eru hvattir til þess að standa saman að því að halda umhverfinu hreinu og nota umhverfisdagana til að hreinsa til í kringum sig og koma frá sér rusli.

Öll heimili á Suðurnesjum geta losað sig við rusl og annan úrgang án þess að greiða fyrir, á staði sem tilgreindir eru hér að neðan föstudaginn 25. apríl og laugardaginn 26. apríl.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Móttökustaðir fyrir rusl og annan úrgang eru eftirtaldir:

  •   Í Vogum á gámaplani Kölku við Jónsvör
  •   Í Grindavík á gámaplani Kölku við Nesveg
  •   Í Garði á lóð áhaldahúss bæjarins við Gerðaveg
  •   Í Sandgerði á lóð áhaldahúss bæjarins við Strandgötu.
  •   Í Reykjanesbæ eru þrjú eftirtalin móttökusvæði:
  •   Á gámaplani Kölku í Helguvík
  •   Á gatnamótum Engjadals og Trönudals í Innri – Njarðvík
  •   Á plani við Grænásbraut 920 (Top of the Rock) á Ásbrú

Gjaldfrjálsir opnunartímar á móttökusvæðum eru frá kl. 13:00. til 18:00 föstudaginn 25. apríl og frá kl. 10:00 til 18:00 laugardaginn 26. apríl. Starfsmenn Kölku munu taka vel á móti fólki og munið að það flýtir mikið fyrir að koma með ruslið vel flokkað. Nánari upplýsingar má fá hjá Kölku í síma 421-8010