Umhverfisáhrif óveruleg við Lífalkóhól- og glýkólverksmiðju við Helguvíkurhöfn

Skipulagsstofnun telur að áhrif Lífalkóhól- og glýkólverksmiðju AGC ehf. við Helguvíkurhöfn í Reykjanesbæ á hljóðvist, loftgæði, lífríki og gæði sjávar verði óveruleg. Verksmiðjan muni ekki valda verulegum neikvæðum og óafturkræfum áhrifum á umhverfið. 
Þetta kemur fram í nýju áliti stofnunarinnar. Þar segir að mikilvægt sé að gerð verði vönduð áhættugreining á verksmiðjunni og brunahönnun hennar Hönnun verksmiðjunnar og skipulagning eldvarnamála verði síðan byggð á þeirri greiningu.
Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar.



 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				