UMFN ræður framkvæmdastjóra

Að sögn Kristjáns Pálssonar formanns stjórnar UMFN taldi stjórnin nauðsynlegt að ráð framkvæmdastjóra vegna aukinna umsvifa hjá félaginu. Mikil fjölgun íbúa er fyrirsjáanlega í hverfinu og nýr skóli, Akurskóli þegar tekinn til starfa auk Njarðvíkurskóla og Holtaskóla.
Stjórnin hyggst standa að markvissri kynningu á starfsemi UMFN í þessum skólum og einnig kynningu til almennings.