Föstudagur 12. nóvember 1999 kl. 22:46
UMFERÐASLYS Á NJARÐVÍKURFREKJUNNI
Síðastliðinn laugardag var ekið á 14 ára gamla stúlku á Frekjunni við Samkaup. Stúlkan kastaðist uppá vélarhlíf bifreiðarinnar og við skoðun kom í ljós að hún hafði tognað í hálsi og baki.