Umferðarslys á Reykjanesbraut
Rétt fyrir klukkan 19:00 í gær varð umferðarslys við Fitjar á Reykjanesbraut. Tildrög slyssins eru þau að fólksbíl sem ekið var austur Reykjanesbraut og beygði til vinstri inn á Stekk ók í veg fyrir sendibíl sem var á leið vestur Reykjanesbraut. Ökumaður fólksbílsins var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og við skoðun kom í ljós að hann hafði viðbeinsbrotnað. Ökumann sendibílsins sakaði ekki. Báðir bílarnir skemmdust mikið og þurfti að fjarlægja þá með kranabíl.